Berglind Gunnarsdóttir

Orðlaus

maí 14, 2008 · 3 Ummæli

Ég hef lesið og heyrt um þónokkuð mörg ultramaraþon, adventure race og þríþrautir og heillast mikið af þessari klikkun. Ég hélt nú að ég væri búin að heyra um svæsnustu keppnirnar en neineinei, þetta las ég á blogginu hjá Gulla “frænda” ofurhlaupara (skrifað um Neil Kapoor vin Gulla):

“Allt þetta er undirbúningur fyrir hinn tífalda Ironman sem hann ætlar að takast á við Í Mexíkó í haust. Þar mun hann synda 38 km í 25 metra laug, hjóla 1800 km á 2.5 km hring (tekur svona sex daga) og að lokum hlaupa 420 km á 400 metra braut. Hann segir að ef hann klárar hjólið þá muni hann klára þrautina því þá sé hinu erfiðasta lokið. Alls tekur þetta svona 10 – 12 daga og það er verið að í 20 – 22 tíma á sólarhring. Allt sem maður hefur kynnst er bara kjúklingagauf í samanburði við þessi ósköp.”

Ég gapti.

Flokkar: Blogroll

3 responses so far ↓

  • Harpa // maí 16, 2008 kl. 11:38 pm | Reply

    Þeir gefa sem sagt bara 2-4 klst. í að borða og sofa?
    Okey…við erum að tala um að keppendur enda annað hvort dauðir af næringarskorti eða geðveikir af svefnleysi. …mikið kikk í hreyfingunni þar!

  • berglind83 // maí 18, 2008 kl. 2:41 pm | Reply

    Snarbilað, I know… þeir sofa 2-4 tíma á sólarhring en borða nú líka að sjálfsögðu meðan þeir eru að púla. Og ekki nóg með að þetta séu klikkaðar vegalengdir þá er hjólað á 2,5km hring og hlaupið á frjálsíþróttavelli hring eftir hring eftir hring eftir hring eftir hring eftir hring eftir hring, þið skiljið hvað ég er að fara!

  • laufs // maí 18, 2008 kl. 3:44 pm | Reply

    oj… hring eftir hring eftir hring eftir hring í öllu… extra challenge í einrænunni? Sjálfsagt gert til að þeir séu alltaf á sama staðnum upp á græjur, mat og hvíld og auðvitað til að fylgjast vel með þeim, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera! ég dræpist fyrst og síðast úr leiðindum!

Rita ummæli