Ég hef lesið og heyrt um þónokkuð mörg ultramaraþon, adventure race og þríþrautir og heillast mikið af þessari klikkun. Ég hélt nú að ég væri búin að heyra um svæsnustu keppnirnar en neineinei, þetta las ég á blogginu hjá Gulla “frænda” ofurhlaupara (skrifað um Neil Kapoor vin Gulla):
“Allt þetta er undirbúningur fyrir hinn tífalda Ironman sem hann ætlar að takast á við Í Mexíkó í haust. Þar mun hann synda 38 km í 25 metra laug, hjóla 1800 km á 2.5 km hring (tekur svona sex daga) og að lokum hlaupa 420 km á 400 metra braut. Hann segir að ef hann klárar hjólið þá muni hann klára þrautina því þá sé hinu erfiðasta lokið. Alls tekur þetta svona 10 – 12 daga og það er verið að í 20 – 22 tíma á sólarhring. Allt sem maður hefur kynnst er bara kjúklingagauf í samanburði við þessi ósköp.”
Ég gapti.