Undarleg stemning í garðinum hjá okkur þessa dagana. Hópur pólskra verkamanna er að pússa húsið og koma því í sumarform og þeir babbla nottla stöðugt og óskiljanlega en það sem verra er er að þeir skilja ekki baun í neinu öðru tungumáli en pólsku. Reyndi að tala við einn í gær og hann bara benti hingað og þangað og svaraði mér á pólsku… ég brosi líka alltaf kumpánlega og segi hæ þegar ég fer út en þeir bara gefa mér fýlusvip tilbaka?! Virka ekki hamingjusamir menn, því miður. En allavega, það sem fékk mig til að blogga um þessa ágætu menn er atvik sem ég varð vitni af rétt áðan. Einn gaurinn var að laumupokast í töskunni sinni og dregur upp vodkaflösku og slurkar vel í glasið sitt og passaði afarvel upp á að enginn sæi til hans, obbobbobb… ef húsið lítur undarlega út eftir vikuna þá vitum við af hverju
Vona nú samt að þeir fái sanngjörn laun, eru hér frá kl.7 á morgnana og ekki enn farnir núna kl.18:30 !
2 responses so far ↓
Óskar // apríl 24, 2008 kl. 10:05 am |
Ég hef einu sinni farið til Póllands og þar varð ég vitni af alvöru innfæddri vodkadrykkju.
Ég á ennþá erfitt með að trúa því hversu mikið af þessum fjanda þeir innbyrðu án þess að blikka. Ég var sko að drekka bjór og rauðvín á sama hraða og sumir.
Guðný // apríl 27, 2008 kl. 7:09 pm |
Hahha, já þeir eru góðir þessir pólverjar:)