Mmmm, loksins að koma vor ! Sól og blíða úti núna en kannski heldur svalt enn þá. Helgin er búin að vera góð. Við Auður ætluðum aaaaaaðeins að kíkja á nordatlantisk bjórkvöld sem grænlendingarnir héldu fyrir Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga. Þetta “aðeins” varð svo að djammi fram á morgun og við skemmtum okkur konunglega. Var svo heppin að fá pabba í heimsókn í gær
Stoppaði í sólarhring og við höfðum það rosagott. Töluðum og töluðum og töluðum, fékk tölvukennslu, fórum á Jensens í steik og rauðvín og svo heim í huggulegheit. Í morgun var svo rölt í bakaríið og hlegið að alls kyns myndböndum á youtube, m.a. þessu..
Farin í nudd til Hillu
4 responses so far ↓
Eva Kr // apríl 13, 2008 kl. 4:15 pm |
Ég sem var hætt að skoða bloggið þitt þar sem alltaf blasti við mér hálfmaraþon í Berlín! Svo ég gat lesið nóg núna. Haltu áfram að vera dugleg að blogga. Leiðinlegt með norska strákinn, í guðanna bænum fariði varlega á hjólunum! Gangi þér vel með hnéð. Veit það manna best hvað þessi hnémeiðsli eru leiðinleg!
Kv. þrennukrossbandaslítarinn!
berglind83 // apríl 13, 2008 kl. 6:25 pm |
Hehe, ég er svona slurkabloggari… don´t give up on me
Og takk fyrir hvatninguna, hef hugsað mér að láta nægja að vera engangskrossbandaslítari !
Guðný // apríl 15, 2008 kl. 3:17 pm |
http://odensepiur.wordpress.com/ tékk it át:D
Sveinn Gunnlaugsson // apríl 17, 2008 kl. 12:06 am |
Skemmtilegt…