Mmmm, loksins að koma vor ! Sól og blíða úti núna en kannski heldur svalt enn þá. Helgin er búin að vera góð. Við Auður ætluðum aaaaaaðeins að kíkja á nordatlantisk bjórkvöld sem grænlendingarnir héldu fyrir Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga. Þetta “aðeins” varð svo að djammi fram á morgun og við skemmtum okkur konunglega. Var svo heppin að fá pabba í heimsókn í gær
Stoppaði í sólarhring og við höfðum það rosagott. Töluðum og töluðum og töluðum, fékk tölvukennslu, fórum á Jensens í steik og rauðvín og svo heim í huggulegheit. Í morgun var svo rölt í bakaríið og hlegið að alls kyns myndböndum á youtube, m.a. þessu..
Farin í nudd til Hillu