Einhver búinn að láta plata sig í dag? Ég féll fyrir bíó gabbinu á mbl… fannst ljómandi góð hugmynd að fara að glápa á glænýja bíómynd frítt í staðinn fyrir að halda áfram að læra en neinei, 1.apríl!
En yfir í leiðinlegri fréttir. Eins og þið hafið eflaust mörg lesið á mbl eða annars staðar þá létust 9 einstaklingar í umferðarslysum hér í DK um helgina. Eitt þessara slysa gerðist hér i Odense. http://www.fyens.dk/article/965311:Odense–22-aarig-draebt-i-Odense Það lést s.s. 22ára norskur strákur sem var vinur nokkurra vina minna í skelfilegu slysi. Strákurinn hjólaði ljós – og hjálmlaus (eins og svo margir aðrir) yfir á rauðu ljósi kl.2:20 um nóttina (líka eins og svo margir aðrir) og 21 árs strákur sem einnig er vinur nokkurra vina minna keyrði á hann. Ökumaðurinn var s.s. á leið heim frá háskólanum eftir langa lestrarnótt vegna prófs í dag. Hvorugur strákanna var undir áhrifum áfengis eða annarra efna og þetta var engan veginn ökumanninum að kenna. Virkilega sorglegt og minnir okkur á að fara varlega og njóta lífsins.
Hvað þyrfti til, til að þú hjólaðir með hjálm?
Update – þegar ég heyrði af slysinu hugsaði ég strax til eina norska stráksins sem ég kannast við af H.C. Ørstedskollegíinu en mér var sagt að þetta væri ekki hann. Nú var ég þó að heyra að þetta hefði verið hann. Hef einungis hitt hann einu sinni en hann er þó sá strákur sem hefur gefið mér fallegasta hrós sem ég hef nokkurn tímann fengið. Kom til mín og sagði að ég væri mest aðlaðandi stelpa sem hann hefði nokkurn tímann hitt… og lét svo fylgja glottandi með að ég yrði sú fyrsta sem hann myndi hringja í ef hann myndi hætta með kærustunni. Stutt kynni en afargóð.
4 responses so far ↓
Anna Heiða // apríl 3, 2008 kl. 4:36 pm |
Ohhhh…. dúllu strákur
Alltaf gaman að fá svona skemmtileg hrós.
Harpa // apríl 3, 2008 kl. 10:28 pm |
Ég hljóla alltaf með hjálm, og hef gert alveg síðan gamall kall keyrði á mig þegar ég var að koma af næturvakt á Skjóli helgina fyrir útskriftarferðina okkar til Krítar…þó ég fékk nú bara smá gat á hausinn kenndi það mér að lífið er of dýrmætt og ÉG OF FRÁBÆR til að taka svona sjénsa! …hjálmurinn bjargar helling
Guðný // apríl 9, 2008 kl. 8:27 pm |
Ég hjólaði fram hjá staðnum, þar sem strákurinn lést, í dag og þar var hrúga af blómum, myndum og kortum. Rosalega sorglegt og ég fékk alveg kökk í hálsinn við að sjá þetta. Ótrúlega súrrealískt svona þegar maður er nýbúin að hitta hann!!
Og hjálmurinn er alveg málið, þarf að fara að kaupa mér svoleiðis!
En hvernig væri að blogga meira, rekur á eftir mér en gerir ekkert sjálf;)
Hillpill // apríl 11, 2008 kl. 7:11 pm |
Er skemmtilega bloggkonan týnd???