Berglind Gunnarsdóttir

Entries from apríl 2008

Mmmm…

apríl 28, 2008 · 2 Ummæli

…góð helgi að baki og nú á ég að vera í fyrirlestri en sit við skrifborðið heima í staðinn! Á föstudaginn var langur skóladagur og svo lá leiðin á fredagsbar á teknikum þar sem Malakoff var að spila. Strákarnir eru ávallt hressir og Gústi oftar en ekki fáklæddur á sviðinu:

Eftir trylltan dans og nokkra öl lá leiðin í innflutningspartý hjá Naju bekkjarsystur. Þar var fólk meira í skotunum en bjórnum:

Eftir gott partý lá svo leiðin í næsta partý, hjá henni Dísu… nóg að gera þetta kvöld! Og loks á Heidys fram á morgun. Eftir allt of lítinn svefn hjálpaði ég þessum fallegu vinum mínum að flytja:

Og eftir flutningana fórum við í búðaráp – Ikea, Bilka og Jysk og ég var svona eins og litla barnið þeirra.. sat aftur í og borðaði bland í poka og suðaði ekkert í búðunum. Um kvöldið grilluðum við svo hjá Bóasi ásamt góðu og þreyttu fólki. Allir komnir heim í háttinn fyrir miðnætti. Gærdagurinn var svo frábær. Það var 20stiga hiti og eftir lærdóm fórum við Merete í 35km hjólatúr í blíðunni. Very nice.

Mússímússí

Komum svo vel dasaðar heim og pöntuðum okkur pizzu namminamm…

Á dagskránni er svo ferð til Münster í Þýskalandi með henni Halldísi að heimsækja Laufeyju og Ingvar. Leggjum í hann eldsnemma á miðvikudagsmorgun og heim á laugardaginn. Hlakka til :)

Flokkar: Blogroll

Pólverjar á glugganum

apríl 23, 2008 · 2 Ummæli

Undarleg stemning í garðinum hjá okkur þessa dagana. Hópur pólskra verkamanna er að pússa húsið og koma því í sumarform og þeir babbla nottla stöðugt og óskiljanlega en það sem verra er er að þeir skilja ekki baun í neinu öðru tungumáli en pólsku. Reyndi að tala við einn í gær og hann bara benti hingað og þangað og svaraði mér á pólsku… ég brosi líka alltaf kumpánlega og segi hæ þegar ég fer út en þeir bara gefa mér fýlusvip tilbaka?! Virka ekki hamingjusamir menn, því miður. En allavega, það sem fékk mig til að blogga um þessa ágætu menn er atvik sem ég varð vitni af rétt áðan. Einn gaurinn var að laumupokast í töskunni sinni og dregur upp vodkaflösku og slurkar vel í glasið sitt og passaði afarvel upp á að enginn sæi til hans, obbobbobb… ef húsið lítur undarlega út eftir vikuna þá vitum við af hverju ;)

Vona nú samt að þeir fái sanngjörn laun, eru hér frá kl.7 á morgnana og ekki enn farnir núna kl.18:30 !

Flokkar: Blogroll

Vor í loftinu

apríl 13, 2008 · 4 Ummæli

Mmmm, loksins að koma vor ! Sól og blíða úti núna en kannski heldur svalt enn þá. Helgin er búin að vera góð. Við Auður ætluðum aaaaaaðeins að kíkja á nordatlantisk bjórkvöld sem grænlendingarnir héldu fyrir Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga. Þetta “aðeins” varð svo að djammi fram á morgun og við skemmtum okkur konunglega. Var svo heppin að fá pabba í heimsókn í gær :) Stoppaði í sólarhring og við höfðum það rosagott. Töluðum og töluðum og töluðum, fékk tölvukennslu, fórum á Jensens í steik og rauðvín og svo heim í huggulegheit. Í morgun var svo rölt í bakaríið og hlegið að alls kyns myndböndum á youtube, m.a. þessu..

Farin í nudd til Hillu ;)

Flokkar: Blogroll

Aprílgabb – updated

apríl 1, 2008 · 4 Ummæli

Einhver búinn að láta plata sig í dag? Ég féll fyrir bíó gabbinu á mbl… fannst ljómandi góð hugmynd að fara að glápa á glænýja bíómynd frítt í staðinn fyrir að halda áfram að læra en neinei, 1.apríl!

En yfir í leiðinlegri fréttir. Eins og þið hafið eflaust mörg lesið á mbl eða annars staðar þá létust 9 einstaklingar í umferðarslysum hér í DK um helgina. Eitt þessara slysa gerðist hér i Odense. http://www.fyens.dk/article/965311:Odense–22-aarig-draebt-i-Odense Það lést s.s. 22ára norskur strákur sem var vinur nokkurra vina minna í skelfilegu slysi. Strákurinn hjólaði ljós – og hjálmlaus (eins og svo margir aðrir) yfir á rauðu ljósi kl.2:20 um nóttina (líka eins og svo margir aðrir) og 21 árs strákur sem einnig er vinur nokkurra vina minna keyrði á hann. Ökumaðurinn var s.s. á leið heim frá háskólanum eftir langa lestrarnótt vegna prófs í dag. Hvorugur strákanna var undir áhrifum áfengis eða annarra efna og þetta var engan veginn ökumanninum að kenna. Virkilega sorglegt og minnir okkur á að fara varlega og njóta lífsins.

Hvað þyrfti til, til að þú hjólaðir með hjálm?

Update – þegar ég heyrði af slysinu hugsaði ég strax til eina norska stráksins sem ég kannast við af H.C. Ørstedskollegíinu en mér var sagt að þetta væri ekki hann. Nú var ég þó að heyra að þetta hefði verið hann. Hef einungis hitt hann einu sinni en hann er þó sá strákur sem hefur gefið mér fallegasta hrós sem ég hef nokkurn tímann fengið. Kom til mín og sagði að ég væri mest aðlaðandi stelpa sem hann hefði nokkurn tímann hitt… og lét svo fylgja glottandi með að ég yrði sú fyrsta sem hann myndi hringja í ef hann myndi hætta með kærustunni. Stutt kynni en afargóð.

Flokkar: Blogroll