Berglind Gunnarsdóttir

Awoohoo…

mars 27, 2008 · 4 Ummæli

Flugmiðarnir í höfn. Þann 14.júní flýg ég til KENYA með múttu minni :D Ætlum að njóta lífsins þar í 3 vikur og vonandi sjá marga svona…

Ég hlakka mikið til, nú er að fara að lesa í Footprint bókinni minni sem að hefur safnað ryki allt of lengi vegna óeirðanna í Kenýja.

Danir eru ansi duglegir að gera danska útgáfur af hinum ýmsu þáttum og margir skemmtilegir. Ég virkilega sprakk úr hlátri í gær þegar ég sá auglýsingu fyrir þann nýjasta… og mér varð hugsað til mömmu og Jóhönnu þar sem að við hlógum mikið yfir upprunalegu útgáfunni… það er að koma dönskt útgáfa af hinum ótrúlega japanska þætti Human Tetris!

Fólki dettur nú ýmislegt í hug. Mér finnst fyndnast þegar gaurinn gerir sprællemanninn og hittir ekki í gatið :) En eins og ég hef nú hlegið mikið að þessu þá er ég ekki alveg að sjá þetta verða success hér í DK ennnnnnnn, hver veit !

Rétt eftir auglýsinguna sá ég svo þennan mann í prufu fyrir skandinavíska So You Think You Can Dance (Ísland þó ekki með, skandall):

Heimurinn væri nú ekki jafnskemmtilegur án svona litríkra karaktera :)

Flokkar: Blogroll

4 responses so far ↓

  • Halldís // mars 28, 2008 kl. 12:32 pm | Reply

    þetta tetrisdæmi getur ekki verið jafnfyndið á dönsku…. trúi því ekki

    en so you think you can dance er skemmtilegast í heimi, allir fimmtudagar hjá mér verða teknir frá..

  • Hillpill // mars 28, 2008 kl. 3:07 pm | Reply

    Passaðu bara að TÍGRISDÝRIN éti þig ekki þarna í Kenya…múhahaha ;-)
    Þessi Human Tetris þáttur er ekkert smá fyndinn….og já ég missti mig úr hlátri þegar gaurinn gerði sprællemand og hitti ekki…hahaha…..og búningarnir OMG!!!!
    Þú ert bara að missa þig í blogginu stúlkukind….bloggar eiginlega fyrir okkur báðar ;-) Ennn ég skal blogga fyrir þig um helgina :-)
    Ooog hey!!! af því að þú ert nú slösuð…eigum við þá ekki að láta verða af því að skella okkur á námskeið um hvernig á að skipuleggja adventure race (þ.e. ef það er enn í boði)??
    Jæja…..laaaangt komment…hlakka til að sjá þig eftir 10 daga :-)

  • berglind83 // mars 28, 2008 kl. 5:39 pm | Reply

    Hvað heitir eiginlega sprællemand á íslensku? Er ekki að grínast… :S

  • Harpa // mars 30, 2008 kl. 1:47 pm | Reply

    Ohh…Kenya er æði!! …þú átt frábæran tíma fyrir höndum. Hvert er ferðaplanið…hvar ætliði að vera í Kenya?

Rita ummæli