Flugmiðarnir í höfn. Þann 14.júní flýg ég til KENYA með múttu minni
Ætlum að njóta lífsins þar í 3 vikur og vonandi sjá marga svona…
Ég hlakka mikið til, nú er að fara að lesa í Footprint bókinni minni sem að hefur safnað ryki allt of lengi vegna óeirðanna í Kenýja.
Danir eru ansi duglegir að gera danska útgáfur af hinum ýmsu þáttum og margir skemmtilegir. Ég virkilega sprakk úr hlátri í gær þegar ég sá auglýsingu fyrir þann nýjasta… og mér varð hugsað til mömmu og Jóhönnu þar sem að við hlógum mikið yfir upprunalegu útgáfunni… það er að koma dönskt útgáfa af hinum ótrúlega japanska þætti Human Tetris!
Fólki dettur nú ýmislegt í hug. Mér finnst fyndnast þegar gaurinn gerir sprællemanninn og hittir ekki í gatið
En eins og ég hef nú hlegið mikið að þessu þá er ég ekki alveg að sjá þetta verða success hér í DK ennnnnnnn, hver veit !
Rétt eftir auglýsinguna sá ég svo þennan mann í prufu fyrir skandinavíska So You Think You Can Dance (Ísland þó ekki með, skandall):
Heimurinn væri nú ekki jafnskemmtilegur án svona litríkra karaktera