Berglind Gunnarsdóttir

Ef ég væri 15ára…

mars 21, 2008 · 2 Ummæli

…þá væri ég head over heels yfir þessum gutta

Allir í DK kannast við þennan dreng, þetta er hann Martin í X-faktor. 15 ára polli sem er algjört sjarmatröll og gríðarlega efnilegur performer. Strákgreyið hefur ekki við að svara aðdáendabréfum frá smástelpum :)

En talandi um X-faktor þá erum við Guðný að “slást” um þennan mann (horfið framhjá hlírabolnum ;) ):

Hann má sko alveg heimsækja mig…

Guðný er búin að kanna þetta fyrir okkur. Hann er víst á pikkföstu, búinn að vera með gellunni í 4 ár sem að okkar mati er afarkrítískur tími og því afarlíklegt að upp úr slitni fljótlega ;)

Páskafríið er annars búið að vera afargott og afslappandi. Fékk góða gesti síðustu helgi:

Við höfðum það rosagott. Borðuðum góðan mat, hyggede os, fórum í skrifborðsstólsleit og keyrðum um allan Fjón. Óðinsvéingar – mæli tvímælalaust með tapas á The Room, namminamm á góðu verði ! Á þriðjudaginn heilsaði ég svo upp á Hrefnu, Jóhönnu, Björn og Gerplufélaga í Árósum. Stelpurnar eru í æfingabúðum í Silkeborg og kíktu í smá heimsókn til Árósa. Við Hrefna og Björn röltum um í sólinni, borðuðum ís og kíktum á kaffihús. Ég ákvað svo að skella mér með til Silkeborg þar sem við fórum út að borða og chilluðum í íþróttamiðstöðinni. Mjög huggulegur bær, ætla að kíkja þangað betur einn daginn. Á inni guided tour af bænum hjá honum Simoni. Síðustu tvær nætur var ég svo á vakt; mjög misjafnar vaktir. Sú seinni heldur meira krefjandi en sú fyrri, mjög andlega veikur fíkill sem er alveg orðinn tómur á milli eyrnanna, virkilega sorglegt. Átti heldur erfitt með að vera jafnákveðin og ég átti að vera. Átti að halda honum inni á stofunni sinni og bara loka hurðinni “á hann”. Ég gerði það svosem en vorkenndi honum mikið. Hann svaf ekkert alla nóttina, sat bara og starði út í loftið milli þess sem hann fiktaði í útvarpinu, borðinu og öllu öðru inni á stofunni og reyndi að komast fram. Hann hefur víst lítið sem ekkert sofið síðustu daga.

Boðskapur sögunnar er s.s. – Fariði vel með ykkur og don´t do drugs!

Ætla að skella mér í ræktina á morgun og vonandi hjóla svolítið (í fyrsta skipti í 2 mánuði !). Annars bíður lærdómur, partý, páskahátíðarmatur, fleiri vaktir, sjúkraþjálfun og loks skóli igen.

Komið nóg af “kæra dagbók” for nu.

Flokkar: Blogroll

2 responses so far ↓

  • Sveinn Gunnlaugsson // mars 22, 2008 kl. 3:07 pm | Reply

    Skemmtilegt…

  • Þórey // mars 23, 2008 kl. 3:02 am | Reply

    Gott að þú ert farin að blogga aftur:) og gott að þú ert farin að geta hreyft þig eitthvað. Annars fór ég á fimleikaæfingu um daginn með Hildi og fleirum svo maður getur kannski farið að telja sig Gerplumeðlim, skil ekki afhverju mér var ekki boðið með í þessar æfingarbúðir?? hehe. Hlakka til að hitta þig í sumar og hjóla með þér á Þingvelli vúhú! ;)

Rita ummæli