Ekkert meira svona… amk ekki í bili !

Læknisheimsóknin á þriðjudaginn gekk vel. Liðbandið á innanverðu hnénu orðið nokkuð stabilt og lítur bara vel út. Krossbandið er enn talið slitið en ENN ekki öruggt… ég gat ekki beygt hnéið nóg til að hann gæti gert testin sín almennilega og sagðist ekki vilja senda mig í speglun eða neitt svoleiðis núna þar sem að það myndi engu breyta um framhaldið, vilja hafa mann sterkan og hreyfanlegan í hnénu fyrir aðgerð. Ég er s.s. á leið í sjúkraþjálfun núna næstu vikur, mánuði og fer svo aftur í tékk í maí þar sem skoðað verður hvort þörf sé á aðgerð.
En eins og ég segi, orðin spelkulaus og það er þvílíkur munur svo að allt er jákvætt. Æfingamarkmiðin breytast mikið þegar ástandið er svona, engin maraþonmarkmið í bráð, nú er að komast í hjólaform svo ég geti hjólað með Hillu, Þóreyju, Stebba og öðrum áhugasömum til Þingvalla í sumar.
Ég get, ég ætla, ég skal !
4 responses so far ↓
Hillpill // mars 13, 2008 kl. 6:59 pm |
You can do it!!!!!
Anna Heiða // mars 14, 2008 kl. 1:56 am |
Shit hvað ég finn mikið til með þér elsku vinkona… Hnémeiðsli eru leiðinlegust.. það er ekkert hægt að gera með svoleiðis. Ekki nema bara lyfta á hendur.. og skák! Vertu bara dugleg í þjálfuninni stelpa þá er aldrei að vita hvað þú getur í sumar
Eyrún Harpa // mars 15, 2008 kl. 4:03 pm |
Þú ert dugleg, gangi þér súper vel með framhaldið:D
Hey, núna er innan við sólarhringur í brottför(vííí) til Svíþjóðar… verðum svo að vera í bandi í mars/apríl/maí, sérstaklega ef þú ferð eitthvað til Köben, þá væri nú tilvalið að hittast smá:)
knús til þín!
Gyða // mars 17, 2008 kl. 12:21 am |
Þú ert sko að gera góða hluti í bloggheiminum þessa dagana
Vona að þú eigir góða páska Berglind mín og sé þig vonandi koma hjólandi í skólann næst þegar ég sé þig
Sjáumst, kv. frá Íslandinu.