

Þar sem að það fer afarlítið fyrir aktívum ævintýrum hjá mér þessa dagana þá er ég þeim mun duglegri í að glápa á tv og fara í bíó…. og borða popp! Hef ekki farið nema 6-7 sinnum í bíó síðan ég flutti hingað en 2 ferðanna voru á síðustu 10 dögum… í síðustu viku sá ég Atonement sem ég mæli eindregið með, vel gerð og virkilega góð saga. Í gær fórum við svo nokkrar píur á Juno og brostum allan tímann, þessi mynd er algjört gull, mæli enn meira með henni ! Frábær saga um magnaða karaktera…
Og talandi um tv… ég veit ég á að lesa og lesa meðan ég er svona farlama ennnn… Það er svo mikið af góðum dönskum heimildaþáttum (og örðu rusli
), bara ræð ekki við mig. Í fyrradag horfði ég á þátt um þjálfun og vöðvavirkni, annan um helgarmömmur og loks einn um misnotkun og úff, sá fór alveg með mig. Ég veit að maður heyrir sömu horror sögurnar í svona þáttum aftur og aftur en þetta er alltaf jafnskelfilegt og ein sagan þetta kvöld toppaði allt sem ég hef heyrt. Dönsk kona s.s. (búin að skrifa bók um sitt líf) sem var misnotuð af pabba sínum í mörg mörg mörg ár, verður ólétt eftir hann 12 ára, foreldrarnir (já mamman líka) fela hana nánast þessa 9 mánuði, hún fæðir svo heima og pabbi hennar drepur barnið strax eftir fæðingu og segir svo bara að þessu sé lokið og ekki verði meira rætt um þetta atvik. Loksins þegar konan hátt í fertug segir frá æskuárunum þá er það orðið of seint. Ekki hægt á nokkurn hátt að sanna að pabbi hennar hafi myrt barnið og kynferðisbrotin búin að firnast. Get ekki ímyndað mér hvernig konuni hefur liðið öll þessi ár.
En yfir í jákvæðari hluti… langur dagur í skólanum í dag, skýrslu – og ritgerðaskrif og eftir vinnuna elduðum við Gyða og Merete okkur þessa líka fínu borgara, namminamm. Helgin verður svo án efa góð. Lítur allt út fyrir rólegheit annað kvöld en á lau. er ferðinni heitið til Køben á árshátíð FÍLD (félag ísl. læknanema í DK). Á sunnudaginn verður svo fundur hér í Odense með 2 íslenskum læknum um kandídatsárið heima og loks matarklúbbur hjá Elínu.
Nei, ég læt mér sko ekki leiðast…