Berglind Gunnarsdóttir

Entries from mars 2008

Awoohoo…

mars 27, 2008 · 4 Ummæli

Flugmiðarnir í höfn. Þann 14.júní flýg ég til KENYA með múttu minni :D Ætlum að njóta lífsins þar í 3 vikur og vonandi sjá marga svona…

Ég hlakka mikið til, nú er að fara að lesa í Footprint bókinni minni sem að hefur safnað ryki allt of lengi vegna óeirðanna í Kenýja.

Danir eru ansi duglegir að gera danska útgáfur af hinum ýmsu þáttum og margir skemmtilegir. Ég virkilega sprakk úr hlátri í gær þegar ég sá auglýsingu fyrir þann nýjasta… og mér varð hugsað til mömmu og Jóhönnu þar sem að við hlógum mikið yfir upprunalegu útgáfunni… það er að koma dönskt útgáfa af hinum ótrúlega japanska þætti Human Tetris!

Fólki dettur nú ýmislegt í hug. Mér finnst fyndnast þegar gaurinn gerir sprællemanninn og hittir ekki í gatið :) En eins og ég hef nú hlegið mikið að þessu þá er ég ekki alveg að sjá þetta verða success hér í DK ennnnnnnn, hver veit !

Rétt eftir auglýsinguna sá ég svo þennan mann í prufu fyrir skandinavíska So You Think You Can Dance (Ísland þó ekki með, skandall):

Heimurinn væri nú ekki jafnskemmtilegur án svona litríkra karaktera :)

Flokkar: Blogroll

mars 27, 2008 · 5 Ummæli

Flokkar: Blogroll

Ef ég væri 15ára…

mars 21, 2008 · 2 Ummæli

…þá væri ég head over heels yfir þessum gutta

Allir í DK kannast við þennan dreng, þetta er hann Martin í X-faktor. 15 ára polli sem er algjört sjarmatröll og gríðarlega efnilegur performer. Strákgreyið hefur ekki við að svara aðdáendabréfum frá smástelpum :)

En talandi um X-faktor þá erum við Guðný að “slást” um þennan mann (horfið framhjá hlírabolnum ;) ):

Hann má sko alveg heimsækja mig…

Guðný er búin að kanna þetta fyrir okkur. Hann er víst á pikkföstu, búinn að vera með gellunni í 4 ár sem að okkar mati er afarkrítískur tími og því afarlíklegt að upp úr slitni fljótlega ;)

Páskafríið er annars búið að vera afargott og afslappandi. Fékk góða gesti síðustu helgi:

Við höfðum það rosagott. Borðuðum góðan mat, hyggede os, fórum í skrifborðsstólsleit og keyrðum um allan Fjón. Óðinsvéingar – mæli tvímælalaust með tapas á The Room, namminamm á góðu verði ! Á þriðjudaginn heilsaði ég svo upp á Hrefnu, Jóhönnu, Björn og Gerplufélaga í Árósum. Stelpurnar eru í æfingabúðum í Silkeborg og kíktu í smá heimsókn til Árósa. Við Hrefna og Björn röltum um í sólinni, borðuðum ís og kíktum á kaffihús. Ég ákvað svo að skella mér með til Silkeborg þar sem við fórum út að borða og chilluðum í íþróttamiðstöðinni. Mjög huggulegur bær, ætla að kíkja þangað betur einn daginn. Á inni guided tour af bænum hjá honum Simoni. Síðustu tvær nætur var ég svo á vakt; mjög misjafnar vaktir. Sú seinni heldur meira krefjandi en sú fyrri, mjög andlega veikur fíkill sem er alveg orðinn tómur á milli eyrnanna, virkilega sorglegt. Átti heldur erfitt með að vera jafnákveðin og ég átti að vera. Átti að halda honum inni á stofunni sinni og bara loka hurðinni “á hann”. Ég gerði það svosem en vorkenndi honum mikið. Hann svaf ekkert alla nóttina, sat bara og starði út í loftið milli þess sem hann fiktaði í útvarpinu, borðinu og öllu öðru inni á stofunni og reyndi að komast fram. Hann hefur víst lítið sem ekkert sofið síðustu daga.

Boðskapur sögunnar er s.s. – Fariði vel með ykkur og don´t do drugs!

Ætla að skella mér í ræktina á morgun og vonandi hjóla svolítið (í fyrsta skipti í 2 mánuði !). Annars bíður lærdómur, partý, páskahátíðarmatur, fleiri vaktir, sjúkraþjálfun og loks skóli igen.

Komið nóg af “kæra dagbók” for nu.

Flokkar: Blogroll

Spelkulaus

mars 13, 2008 · 4 Ummæli

Ekkert meira svona… amk ekki í bili !

Læknisheimsóknin á þriðjudaginn gekk vel. Liðbandið á innanverðu hnénu orðið nokkuð stabilt og lítur bara vel út. Krossbandið er enn talið slitið en ENN ekki öruggt… ég gat ekki beygt hnéið nóg til að hann gæti gert testin sín almennilega og sagðist ekki vilja senda mig í speglun eða neitt svoleiðis núna þar sem að það myndi engu breyta um framhaldið, vilja hafa mann sterkan og hreyfanlegan í hnénu fyrir aðgerð. Ég er s.s. á leið í sjúkraþjálfun núna næstu vikur, mánuði og fer svo aftur í tékk í maí þar sem skoðað verður hvort þörf sé á aðgerð.

En eins og ég segi, orðin spelkulaus og það er þvílíkur munur svo að allt er jákvætt. Æfingamarkmiðin breytast mikið þegar ástandið er svona, engin maraþonmarkmið í bráð, nú er að komast í hjólaform svo ég geti hjólað með Hillu, Þóreyju, Stebba og öðrum áhugasömum til Þingvalla í sumar.

Ég get, ég ætla, ég skal !

Flokkar: Blogroll

Mæli með…

mars 6, 2008 · 1 ummæli


Þar sem að það fer afarlítið fyrir aktívum ævintýrum hjá mér þessa dagana þá er ég þeim mun duglegri í að glápa á tv og fara í bíó…. og borða popp! Hef ekki farið nema 6-7 sinnum í bíó síðan ég flutti hingað en 2 ferðanna voru á síðustu 10 dögum… í síðustu viku sá ég Atonement sem ég mæli eindregið með, vel gerð og virkilega góð saga. Í gær fórum við svo nokkrar píur á Juno og brostum allan tímann, þessi mynd er algjört gull, mæli enn meira með henni ! Frábær saga um magnaða karaktera…

Og talandi um tv… ég veit ég á að lesa og lesa meðan ég er svona farlama ennnn… Það er svo mikið af góðum dönskum heimildaþáttum (og örðu rusli ;) ), bara ræð ekki við mig. Í fyrradag horfði ég á þátt um þjálfun og vöðvavirkni, annan um helgarmömmur og loks einn um misnotkun og úff, sá fór alveg með mig. Ég veit að maður heyrir sömu horror sögurnar í svona þáttum aftur og aftur en þetta er alltaf jafnskelfilegt og ein sagan þetta kvöld toppaði allt sem ég hef heyrt. Dönsk kona s.s. (búin að skrifa bók um sitt líf) sem var misnotuð af pabba sínum í mörg mörg mörg ár, verður ólétt eftir hann 12 ára, foreldrarnir (já mamman líka) fela hana nánast þessa 9 mánuði, hún fæðir svo heima og pabbi hennar drepur barnið strax eftir fæðingu og segir svo bara að þessu sé lokið og ekki verði meira rætt um þetta atvik. Loksins þegar konan hátt í fertug segir frá æskuárunum þá er það orðið of seint. Ekki hægt á nokkurn hátt að sanna að pabbi hennar hafi myrt barnið og kynferðisbrotin búin að firnast. Get ekki ímyndað mér hvernig konuni hefur liðið öll þessi ár.

En yfir í jákvæðari hluti… langur dagur í skólanum í dag, skýrslu – og ritgerðaskrif og eftir vinnuna elduðum við Gyða og Merete okkur þessa líka fínu borgara, namminamm. Helgin verður svo án efa góð. Lítur allt út fyrir rólegheit annað kvöld en á lau. er ferðinni heitið til Køben á árshátíð FÍLD (félag ísl. læknanema í DK). Á sunnudaginn verður svo fundur hér í Odense með 2 íslenskum læknum um kandídatsárið heima og loks matarklúbbur hjá Elínu.

Nei, ég læt mér sko ekki leiðast…

Flokkar: Blogroll

Heimsmet í Höllinni

mars 4, 2008 · 2 Ummæli

Ég hefði mikið verið til í að vera heima á Íslandi síðustu helgi þar sem NM öldunga í frjálsum var haldið í Höllinni. Hef tvisvar sinnum unnið á MÍ öldunga og þetta eru ein allra skemmtilegustu mótin, allir hressir og þvílíkur árangur sem næst.

Árangur var eins og við var að búast góður og það féll m.a. eitt heimsmet! Hinn 71 árs gamli Carl-Erik Skramdal frá Svíþjóð stökk 1,57 metra í hástökki… til viðmiðunar fyrir “ekki-frjálsíþróttafólkið” þá á ég ekki nema 1,50m ;) Þetta er líka fyrsta heimsmetið sem fellur í nýju Laugardalshöllinni sem er jú voðagaman…

Elsti keppandinn var Finninn Ilmari Koppinen sem er hvorki meira né minna en 92ára og keppti í flokki 90-94 ára. Koppinen hljóp 60m á 13,93 sek. og 60 GRIND á 17,92. Það hefði ég viljað sjá.

Samkvæmt mömmu var líka mikið fjör í samskiptunum þar sem elstu Finnarnir kunnu litla sem enga ensku, svo að það var notast við handapat og svipbrigði :)

Smá öldungamyndir…


Payton Jordan, fyrrverandi landsliðsþjálfari USA, setur hér heimsmet í 200m hlaupi í flokki 80-85 ára (30.89 seconds) árið 1997 í San Jose, Kaliforníu.

Þetta er svo magnað…

Ég hlakka mikið til að hlaupa aftur :)

Flokkar: Blogroll