Berglind Gunnarsdóttir

Entries from október 2007

Sprell, sprell, sprell…

október 25, 2007 · 7 Ummæli

Þar sem að mér finnst svo skemmtilegt að sprella þá skellti ég mér ásamt Þórdísi (slappa Hildur kemur næst) á fimleikaæfingu í kvöld, ójá, Berglind í fimleikum ;) Hægt að fara í byrjendatrompfimleika uppi í skóla einu sinni í viku og það væri nú gaman að geta sagst geta gert heljarstökk…. eða jafnvel bara beint handahlaup! Æfingin var rosafín og ég efast ekki um að vakni vel aum á morgun… annars er ég reyndar hálflurkum lamin nú þegar eftir æfingu í gær, puha!

Síðast liðinn laugardag var líka heldur betur sprellað með sömu stúlkum, Hildi og Þórdísi. Tókum þátt í mini adventure race í Árósum, rosagaman og ýmislegt brallað út um allan bæ. Ótrúlega gaman að taka þátt í svona inni í miðri borg, fengum t.d. undarleg augnarráð þegar við komum á harðaspretti upp göngugötuna haldandi á 6 dagblaðahöttum sem við bjuggum til í einni þrautinni !

Team Hekla

Keppnin virkaði þannig að það voru rúmlega 20 þrautir sem hægt var að velja á milli og maður átti að ná eins mörgum stigum og maður gat á 3 ½ tíma. Einhverjir voru með taktík og völdu þær þrautir sem tóku stuttan tíma en gáfu mörg stig. Við hins vegar reyndum að prófa sem flesta hluti sem við ekki höfðum prófað áður… mikið vildi ég samt að keppnin hefði verið svona 5 tímar, áttum svo margt eftir. Alls kyns lið voru mætt, allt frá elítufólki sem var of seint að skrá sig í elítukeppnina til stráklinga í gallabuxum og fjölskylduliða – eitt liðið samanstóð af foreldrum yfir fertugt ásamt um 8 ára dóttur þeirra!

Við afrekuðum að prófa 7 þrautir… fyrsta var valin af keppnishöldurum til að dreifa hópnum. Við fengum “metroaktivitet” – áttum að hlaupa niður að einhverju torgi í bænum (hefði verið gott að þekkja bæinn ennnnn… týndumst nú ekki!), þar beið okkar stafli af dagblöðum. Áttum fyrst að finna 3 auglýsingar í blaðinu og rífa þær úr, næst átti að flytja staflann um 20m vegalengd og raða honum nákvæmlega eins upp og loks búa til 6 dagblaðahatta.

Næst fórum við á fjórhjól… bike´n´run á staðinn (1 hlaupa, 2 hjóla) og svo fórum við allar í gegnum þrautabraut á fjórhjólum, megastuð ;)

Eftir brumm brumm var það kajak. Stutt ferð en púff, við Hildur erum ekki efnilegt róður-team…

“Det brændende hotel” var loksins laust eftir kajakróðurinn svo að við sprettum út götuna, að hótel Ritz, upp á 5.hæð, í klifurbelti, út um gluggann og príl/sig niður samanbundin lök – áttum s.s. að flýja frá brennandi hóteli.

Kajakdrop – eins konar rennibraut út í sjó :)

Dagurinn var sýndur beint á TV2 og þessi mynd er algjört gull! Þórdís er hér í viðtali í beinni og hún kom Íslandi vel að: “Hvorfor tror du du kan klare det her” og Þórdís með vott af hneykslissvip “Fordi jeg kommer jo fra Island!!!”

Næst síðasta þrautin sem við náðum var død mur. Afturábak stunga út í sjó af 3m planka, hljómar muuuuuun erfiðara en það er…. eða nei, hehemmm, þetta geta bara professional diverar… okkur gekk erfiðlegast að koma Hildi í gallann sinn, ansi löng fæðing !

Hildur gerði sig klára fyrst… hér vorum við svo filmaðar af einhverri århus sjøonvarpsstöð, væri nú gaman að sjá tökurnar.

Hildur ákvað að nota rassastílinn og gera góða gusu, SPLASSSSSSSS….

…en svo sýndi ég henni hvernig á að gera þetta ;)

Lokaþrautin var svo að byggja brú úr spýtudrumbum og engu öðru og bræuin þurfti að halda okkur – þetta gekk heldur betur illa, maður sem vann á þessari stöð heldur örugglega að það sé ansi lítið milli eyrnanna á okkur ;)

Eftir góðan dag púluðum við Hildur upp endalausar brekkur til Gerðar og Davíðs til að fara í sturtu, hélt það væri bannað að búa upp á svona háum hól í Danmörku, púff… þau voru á leið í teiti svo að eftir snögga sturtu létum við okkur renna niður á lestarstöð og kláruðum að spasla þar. Það gekk þó ekki snuðrulaust fyrir sig að komast þangað því að mér tókst að hrasa um hjólið mitt þegar við stóðum á ljósum… var með risabakpoka á bakinu, datt í slow motion og nánast í afturábak kollhnís og þið getið ímyndað ykkur hvað við hlógum mikið, ætlaði aldrei að geta staðið upp… þessi bylta skyldi eftir sig þennan líka huuuuuges marblett á lærinu, íþróttameiðsl ;)

Skelltum okkur út að borða um kvöldið með Lars, Ragga og vini Lars, heilsuðum upp á nokkra NIH drengi og héldum loks heim á leið um 11-leytið, þreytt og sæl.

Löööööngu kominn háttatími….

Flokkar: Blogroll

Forvitin og fóstbræður

október 11, 2007 · 5 Ummæli

Á blogginu mínu get ég séð hvaðan fólk kemur inn á síðuna, t.d. hvaða leitarorð fólk hefur slegið inn á google… og einstaka sinnum, t.d. í gær, hefur einhver leitað að Berglind Gunnarsdóttir og þá verð ég svo forvitin… hver er að googla mig?!! Eða kannski nöfnu mína á Raskinu, hmmmmm….

Leitarvélar eru annars einstaklega skemmtilegt apparat. María frænka googlaði myndir af Grænlandi fyrir eitthvað skólaverkefni og fékk m.a. upp mynd af okkur Kolbrúnu frá því í white trash partýinu góða í Lundi…. afarundarlegt það!

Good times, good times :)

Við vinkonurnar höfum mikið talað um fóstbræður og Stellu í orlofi undanfarið og hér er einn margra fóstbræðragullmola:

http://www.youtube.com/watch?v=RyMoLVJ_x54

Segi eins og Inga Rós – vona að þetta sé ekki það sem bíður okkar ;)

Flokkar: Blogroll

Árshátíð og góðverk

október 7, 2007 · 7 Ummæli

Á föstudaginn var árshátíð í skólanum, um 8000 manns held ég og góð stemning. Byrjuðum í fordrykk hjá Steffen og svo var haldið upp í skóla í matinn. Það var gríðarleg umferð af leigubílum, hjólum og strætóum upp í skóla – meira að gera á þessu kvöldi heldur en gamlárs hjá töxunum! Ekki tókst okkur að hitta Jóakim prins og Marie, voru farin þegar við mættum, øv… það er s.s. alltaf einhver úr konungsfjölskyldunni á árshátíðinni en þau láta sig yfirleitt hverfa snemma. Maturinn var ekkert til að hrópa húrra fyrir frekar en í fyrra en voðagaman samt að vera í matnum – sjá alla uppstrílaða, hlusta á Steffen halda árlega ræðu upp á stól og Signe verða rúllandi fulla yfir matnum. Hún setti nýtt met í ár, fór heim klukkan rúmlega 8, jebbs :S Hún var reyndar ekki sú eina sem fór yfir strikið í ár, Sandra lét sig hverfa um kl.23… þessir Danir ;)

Eftir tjútt í skólanum kíktum við Gyða og Reem í bæinn, tjúttuðum heilmikið á Alibi og eftir smá innlit á Heidys héldum við heim í háttinn um 4 leytið. Gærdagurinn fór svo í mikil rólegheit og nammiát og loks mat og trivial hjá Guðnýju, voðahyggeligt.

Í dag létum við Gyða gott af okkur leiða og söfnuðum peningum fyrir rauða krossinn. Ekki er búið að telja alla peningana enn en talið er að um 22.000.000 DK hafi safnast, ekki amalegt það og gaman að geta sagst hafa tekið þátt :) Við Guðný vorum svo þær einu sem mættum í skokkið í áðan tókum vel á því… var að fjárfesta í gps úri, fancysmancy svo að nú er eins gott að vera duglegur að hreyfa sig, hmmmm…

Jæja nóg af “kæra dagbók” í dag…

Svona að lokum, gáfuðu vinir:

Af hverju geispum við? og af hverju fær maður hlaupasting?

Við Guðný vorum að velta þessu fyrir okkur og kunnum ekki nein góð svör. Langaði að setja inn myndir frá árshátíðinni en það bíður betri tíma, tölvan eitthvað að hrekkja mig.

Flokkar: Blogroll

Mikið er gott að vera ég…

október 1, 2007 · 6 Ummæli

…ég á yndislega vini og fjölskyldu og er að njóta þess í tætlur að vera til !

Í dag er 3. í afmæli. Hélt megavelheppnað partý á laugardaginn þar sem blandaðir voru ófáir kokteilar – strawberry daiquiri, cosmo og mojito, namminamm… nokkrum drykkjum var líka slett á eldhúsgluggann og upp í loft, nefnum engin nöfn Gummó.  Gítarinn hennar Guðnýjar var líka vinsæll…

…var nú ekki nema 23ára þegar þetta átti sér stað ;)

Er líða tók á kvöldið skipti fólk yfir í staupin og ekki einu sinni brennivínið fékk að vera í friði :S

Í gær var mér svo komið á óvart með kökuboði og þvílíkar kræsingar, vááá… takk kærlega fyrir mig stelpur! Sjálfur afmælisdagurinn hefur verið rólegur en góður, spjall við fólk heima á klakanum og kossar og knús í skólanum. Kvöldið býður svo upp á grjónagraut , kökuafganga og Greys.

Vil að lokum kenna facebook algjörlega um bloggleysið, einn mesti tímaþjófur sem ég hef nokkurn tímann kynnst ennnn…. I´m loving it :/

Flokkar: Blogroll