….kalla hreinlega á að ég fari að blogga aftur, a.m.k. eina færslu, enda ping-pongið orðið rather last week…. OMG sko (bara fyrir þig Þórey mín)
Eftir ólýsanlega gott sumar lá leiðin heim til Odense 29.ágúst og hún Þórey skellti sér með okkur Hillu til Danaveldis til að keppa með okkur í adventure race. Er við mættum á Leifsstöð fattaði Þórey að hún hafði gleymt hlaupaskónum sínum, úpps… ferðin byrjaði vel ! Við vorum þó auðvitað kátar í flúvélinni…

Ekki vorum við nú búnar að vera lengi í Danaveldi þegar ævintýrin hófust. Eftir að hafa klöngrast útúr lestinni í Óðinsvéum með allan farangurinn hoppuðum við upp í lyftu, ýttum á takka og…. EKKERT ! Við vorum fastar….

Við Þóttumst vera voðareiðar en sannleikurinn er nú sá að við grétum úr hlátri. Ég hló svo mikið að mamma skildi ekkert hvað ég var að reyna að segja henni þegar ég hringdi og Hildur var við það að lenda í vandræðalegu slysi…

Við testuðum alla takkana og ekkert gerðist, hjálpartakkinn var ekki einu sinni að gera sig… það svaraði reyndar einhver vörður en við heyrðum ekkert hvað hann sagði og ekkert bólaði á hjálp !

Ekki minnkaði hláturskastið þegar við tókum eftir dagsetningunni á öryggistékkinu, úppppppsss….

Þórey lét sér ekki leiðast og horfði á Greys…

Ég reyndi að berja mér leið út en ekkert gekk… við vorum farnar að hallast að því að hringja á 112 þar sem að ekki bólaði á hjálp og það kom ekki einu sinni lest… við ákváðum þó að lokum að hringja í Gummó sem reif sig fram úr rúminu til að koma okkur til bjargar…. í millitíðinni kom nú lest og við fengum einhverja stelpu til að sækja hjálp. Gummó mætti svo og þær Hjördís náðu í sameiningu að opna hurðina… eftir 40mín. lyftudvöl gátum við loksins loksins haldið heim
Ég mætti svo hress í skólann á fimmtudeginum – voðagott að hitta alla aftur en var nú ekki alveg tilbúin í að meðtaka nýtt námsefni… um kvöldið var svo haldið út að borða í tilefni af afmælinu hennar Hildar, fengum voðagóðan mat á Italiano, Einar Logi smakkaði t.d.snigla…

…og líkaði vel !
Föstudagurinn fór svo í skóla og reddingar fyrir stóra daginn – adventure race-ið!
Þar sem ekki gekk strætó þangað sem við vorum að fara að keppa (15km fyrir utan Odense) og leigubílar taka ekki meira en 2 hjól ákváðum við að tékka á bílaleigubíl og við leigðum þennan líka fína pick-up með ljósi og alles:

Þóreyju tókst sem betur fer að kaupa sér ódýra en fína hlaupaskó – í barnastærð, hún er svo stór stelpan. Kvöldið fór svo í að finna til græjurnar… hjól, hjálma, vatnsheldan túss, sundföt, áttavita….

…og ekki má gleyma – hakka í okkur mat! Birgja okkur upp fyrir stóra daginn sem að við gleymdum alveg að æfa fyrir í sumar :S Loks var það heimalærdómur – “How To Use A Compass”, jebbs, svo pro svo pro!
Á laugardagsmorgun var það svo rise & shine kl.6:45, allar 3 með fínan spennings/stresshnút í mallanum 
Bíllinn fermdur og brunað í Langesøskoven þar sem Firma Multi Motion, 55km adventure race beið okkar…

Mættar á svæðið, enn heldur fámennt og nánast bara elitufólk mætt…

…en við í TEAM NIH vorum að sjálfsögðu klárar í slaginn !


Adventure race er eins og risaratleikur… þessi keppni var 55km (líka hægt að velja 90km), 3 í liði, 70 lið tóku þátt og keppnin fól í sér hlaup, hjól, kano og ýmsar þrautir…
Til að dreifa úr hópnum var byrjað á upphafsþraut – við áttum að byggja veiðistöng og veiða lítið filmubox sem svo innihélt röðina á þrautunum…

Keppnin skiptist í 9 “slaufur” og eftir hverja slaufu kom liðið að marksvæðinu, skilaði svörum/staðfestingum og fékk nýtt verkefni. Það var hlaupið og hjólað eftir kortum sem að maður sá sjálfur um að merkja stöðvarnar rétt inn á…

Við vorum djö… snöggar á fyrstu stöð en úpps, höfðum gleymt spjaldinu til að merkja við á marksvæðinu svo að við þurftum að snúa við, byrjendamistök – gerðum nú slatta af þeim
Higlights….
Þórey tók að sér fyrsta fjörið…synda út að bauju á brimbretti, finna orð sem þar stóð og synda tilbaka…

Ég reyndi svo að skjóta í eitthvað járndrasl en það gekk nú heldur brösulega svo að við fengum refsingu – 2 hringi kringum vatnið á hjólum…

Klifurþrautabraut….

Bolurinn okkar fíni…

Þrautbrautinni lauk svo með reikningsdæmi…

Og lausnin opnaði lás sem hékk á reipi…

Hildur greyið fékk endalausa krampa í fæturna og þarna hangir hún á hjólinu sínu og Þóreyju með krampa í báðum lærum… en ekki gefst hún upp stelpan, ó nei

Hér átti að nota drumba og reipi til að byggja þríhyrning sem við bundum svo fötu við í miðjunni, fulla af vatni og bolti ofaná vatninu. Þetta átti svo að bera gegnum þrautabraut án þess að hella niður vatninu. Brautin var svo með ýmsar hindranir á leiðinni en allt hafðist þetta að lokum!

Hér má sjá smíðastöðina – áttum að saga okkur drumb, bora gat í miðjuna, binda band í gegn og hinn endann í drumb og svo bárum við Þóreyju á þessu apparati okkar um 30m….

Aðrar þrautir voru svo t.d. golf, kano og að kubba í sundlaug ! Eftir 9 tíma action urðum við því miður að játa okkur sigraðar, náðum ekki að klára innan tímamarka í þetta skiptið. Dagurinn var þó ógleymanlegur og vonandi verðum við nú með óslasað lið á næsta ári, og jafnvel búnar að æfa betur líka

Á næsta ári fáum við auglýsingu frá Europcar á bolinn okkar !

Jebb – eins og sönnu íþróttafólki sæmir lá leiðin á pikk-up trukknum beint í bílalúguna á Mac-D og þar var tekið keppnisát, úfffff…..

Þórey náði sveittu stemningunni vel
Búnar á því? Ó nei, beint á djammið og tjúttað fram á morgun… sumir endust þó lengur en aðrir !

Typpastaupin testuð….

Og tjúttað við Baytwatch theme…

Og loks læknanemadjamm á Retro !

Á sunnudeginum kvaddi svo Þórey og Hildur hélt heljarinnar kökuafmæli með þvílíkum kræsingum sem runnu ljúflega niður í þreyttan kroppinn !
Svona eiga helgar að vera