Berglind Gunnarsdóttir

Entries from apríl 2007

Svona er Danmörk í dag !

apríl 27, 2007 · 8 Ummæli

Flokkar: Blogroll

Puff

apríl 25, 2007 · 1 ummæli

Danirnir kunna ekki að meta gæðablóð.. má ekki vera blóðgjafi hérna þar sem að ég bjó í Englandi í meira en 12 mánuði á tímabilunu 1980 – 1996 og gæti því mögulega borið kúariðu í blóðinu, puff, ég ber sko enga svoleiðis vitleysu og hananú !

En svona fyrst við erum í blóðgjafaumræðunni… af hverju í ósköpunum mega hommar ekki vera blóðgjafar??? Allir blóðgjafar eru testaðir fyrir AIDS svo að það getur varla verið ástæðan, eða hvað??

Flokkar: Blogroll

Mmmmmdaaaa

apríl 24, 2007 · 2 Ummæli

…þreytt eftir langan en góðan dag – góður lestrardagur og svo tókum við Hildur djö.. vel á því í ræktinni !

Langaði annars bara að mæla með tveimur myndum sem ég horfði á á sunnudaginn – við Hildur, Sandra, Þórdís og Gyða borðuðum ljúffenga pizzu, horfðum á Happy Feet og Little Miss Sunshine og borðuðum óheyrilega mikið nammi, enda var nú nammidagur hjá okkur ;) Myndirnar voru algjört æði báðar tvær og svei mér þá, held að dansatriðið í Little Miss Sunshine sé með fyndnari bíómyndaatriði sem ég hef séð, við grétum úr hlátri…

Well well, ég býð bara góða nótt og bið að heilsa heim !

Flokkar: Blogroll

Enginn verður óbarinn biskup, eða hvað?

apríl 20, 2007 · 3 Ummæli

…ertu eitthvað aumur, amar eitthvað að? Lalalalalala
Hitti pabba og Rósu í Køben á miðvikudaginn, röltum Strikið og svo lá leiðin í Cirkusbygninguna þar sem Stuðmenn og Sálin héldu magnaða tónleika – glæsilegt hús fyrir svona kvöld ! Við pabbi, Rósa, Lena og Håkan (sænskir vinir) fórum í matinn og allan pakkann – þriggja rétta máltíð, Þorvaldur Flemming veislustjóri, Stuðmenn og Sálin spiluðu og ýmsir gestasöngvarar mættu á svæðið – Valgeir Guðjónsson, Bjöggi og Eyvi og þvílík stemmning þegar Stebbi og Eyvi tóku lagið:

Húsið opnaði svo fyrir tónleikagesti kl.22 og þá mættu m.a. Hilla, Gyða og Hjördís og þrátt fyrir að við höfum líklega eytt hálfu ballinu í röð á barnum þá skemmtum við okkur konunglega… mikið dansað og mikið drukkið enda íslenskir karlmenn bara ansi gjafmilidir á barnum ;)

Pabbi og Rósa

Orðin sveitt og úfin !

Ballið leið heldur til hratt og fólk ekki tilbúið að hætta strax. Eftir rölt upp á hótel til pabba fórum við nokkur og fengum okkur í gogginn á Burger King og svo var haldið í eftirpartý á hótelið hjá Gumma vini hennar Hjördísar. Við Hildur skröltum svo loks heim kl.11 um morguninn veeeeeel threyttar…..

…og myglaðar !

Takk kærlega vel fyrir mig pabbi og Rósa, endurtökum þetta að ári?!

Allt gott af mér annars… er smám saman að koma mér í lestrargírinn enda kominn tími til. Hafði það ljómandi gott heima um páskana og ogguerfitt að fara aftur til DK, alltaf pínu erfitt að skipta yfir í hversdagsleikann eftir afslappelsi í faðmi vina og fjölskyldu. Skelli bráðum inn páskamyndum, á eftir að fá myndir hjá pabbs.

Hér í Odense er annars bara búin að vera bongóblíða svo að núna finnst manni bara skítakuldi – 10grádur ! Framundan er mikill lestur, Lilja í heimsókn í byrjun maí, adventurerace 5.maí, Amsterdam 11.-13.maí og svo próóóóóf… og loks Tyrkland í lok júní !

Life is good :)

Svona að lokum – BOPPA BOLTA, er ekki óeðlilegt að segja það???!

Flokkar: Blogroll