Berglind Gunnarsdóttir

Entries from febrúar 2007

Þorrablót IFO 2007

febrúar 15, 2007 · 10 Ummæli

Ég er búin að hafa það gríðarlega gott síðustu vikurnar… þarsíðustu helgi komu Björg og Jóhanna í heimsókn og höfðum við það voðagott með djammi, afsleppelsi og verslunarferðum ! Verst hvað tíminn leið hratt.

Síðastliðinn laugardag var svo hið stórmagnaða Þorrablót Íslendingafélagsins… og ég þori ekki öðru en að nefna það eins og Hildur að þetta hafi nú ekki verið THE Íslendingafélag en…. föstudagurinn og laugardagurinn fóru í alls kyns þorrablótsnefndarstúss, m.a. afaráhugaverða verslunarferð í Bilka að kaupa áfengi fyrir yfir 100 Íslendinga… jebb það var glápt og bent og ég veit ekki hvað og hvað, hressandi ! Húsið var svo skreytt og laugardagurinn fór meira og minna í að skera þorramatinn, ég angaði vel að hangikjöti og súrum mat þegar ég kom heim svo að sturtan var löng !

Kvöldið sjálft var svo alveg magnað… leið kannski heldur til hratt en frábært engu að síður ! Myndir segja meira en 1000 orð.

Alíslenskur dýrindis matur

Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir veislustjóri kvöldsins, sagði afarhressligea dónabrandara og deildi með okkur megrunarráðunum sínum !

Heiða lét þessa hæfileikaríku gítarleikara sko ekki komast upp með að neita að spila undir fjöldasöngnum. Bóas, Raggi, Hlynur og Haukur fengu að fara í kappát – dýrindis þorrapizza ala Heiða með öllu góðgætinu, bragðbætt með chilisósu og brúnni sósu og öllu klabbinu skolað niður með mysu, namminamm :S

Snorri idol stóð sig eins og hetja ásamt Heiðu í fjöldasöng

Loks var tekið vel á því í tjúttinu. Hljómsveitin Bermuda með idolstjörnuna Ernu í broddi fylkingar tryllti lýðinn. Ýmsir gestasöngvarar fengu að spreyta sig og voru þeir að sjálfsögðu Íslendingum og Óðinsvéum til sóma þrátt fyrir að kunna texta lagana svona freeeeekar misvel… nefni enginn nöfn !

Kvöldið á enda og allir sáttir ;)

Fullt af myndum á smugmugginu: berglind.smugmug.com !

Það er svo mikið að gera að maður hefur ekki tíma fyrir skólann þessa dagana, oh well… stelpukvöld hjá Gyðu i aften, partý á morgun ef maður nennir :S og svo verður haldið til Horsens á laugardaginn að þjóna á þeirra þorrablóti ! Nú er það smá lestur um CNS fyrir æfingu.

Mikið gaman, mikið grín ;)

Flokkar: Blogroll