Hvað er að frétta af mér? Tjaaaa… fór í 1.ársprófið margumrædda 5. og 9.jan. og það gekk þokkalega. Fyrra prófið gekk megavel enda léttara og minna en það síðara sem var djö… erfitt. Gekk ágætlega en það var ansi ólíkt prófum síðustu ára… einkunn eftir smá. Oh well, hver nennir að lesa um það.
Síðustu 10daga hef ég svo hangsað og hangsað og hangsað, tekið 3 vaktir, horft endalaust á tv, hreyft mig… erfitt að komast í gírinn aftur… framkallaði myndir, er búin að lesa góða bók, var á vikukúrs í samskiptafræði alla síðustu viku sem var bara mjög hressandi enda með myndarpiltum í hóp
og núna á ég að vera að læra fyrir próf í sama fagi ennnnnnnn….. veistu, metnaðurinn frekar slakur. Verð að taka mig saman í andlitinu á morgun og hinn og rumpa þessu af!
Vá, ég tala bara um skóla. Hey, er búin að setja inn slatta af nýjum myndum á smugmuggi, m.a. jólamyndir og svo gamlárs í DK sem var rosalega fínt kvöld. Elduðum dýrindismat, spiluðum Tegn og Gæt og Trivial og horfðum á flugelda – við vorum öll svo prófupptekin að það hvarflaði ekki að neinum að kaupa flugelda, hehemmm…

Gamlársgengið – Sandra, Hildur, Gyða, Einar Logi, Þórdís og ég
Það var meiningin að skella inn einu afarskemmtilegu myndbandi en það gengur svooooo hægt að það bíður betri tíma.
Næsta önn er orðin skuggalega plönuð, verður komið sumar áður en ég veit af! Fæ fullt af heimsóknum – Björg, Jóhanna, mamma, NIH krakkarnir… pabbi og Rósa mæta á Sálina og Stuðmenn í apríl, svo fer ég til Amsterdam í maí OG kem heim um páskana
Eins gott að vera dugleg að lesa og vinna á milli heimsókna.
Jæja, ætla að koma mér í rúmið svo að ég geti vaknað snemma tomorrow.
Ciao ciao