Berglind Gunnarsdóttir

Entries from desember 2006

Takk takk takk!

desember 29, 2006 · 11 Ummæli

Langaði til að þakka öllum fyrir yndisleg jól, hafði það rosagott heima og þetta var sko nauðsynleg pása fyrir lestrarendasprettinn. Ég er bara sallaróleg þessa dagana yfir prófinu sem er búið að vera að gera mig gráhærða síðustu mánuði… er kannski smám saman að læra að það er enginn heimsendir að fá ekki góðar einkunnir, hver veit ;)

Takk allir fyrir jólakort, jólagjafir og jólakveðjur – Ómar og Kolbrún fá sésrstakt hrós fyrir frumleg jólakort og pabbi og rósa gáfu tvímælalaust frumlegustu jólagjöfina – mega piknik tösku :) Eins og þið hafið eflaust tekið eftir þá sendi ég engin jólakort, sjaldan sem ég klikka á því ennnnnnnn…. so sorry !

Hlakka til gamlárs…. verðum 6-7 heima hjá okkur og ætlum að borða íslenskt læri, grænar baunir, íslenskan fetaost, heimatilbúinn ís, nóa konfekt, drekka malt og appelsín og jafnvel spila svolítið og horfa á áramótaskaupið ef það verður sýnt beint ! Verður yndislegt.

Býst ekki við að blogga fram að prófum…. nú er það bara endaspretturinn, ég get, ég ætla, ég skal !

Knús frá DK

Flokkar: Blogroll

Jólahittingur…

desember 12, 2006 · 13 Ummæli

…og þér er boðið ;)

Jæja gott fólk, þá fer að styttast í mína afarstuttu jólaheimsókn og þar sem ég vil að sjálfsögðu fá að knúsa ykkur öll þá ætla ég að boða til jólasaumó fyrir vini og vandamenn nær og fjær!

Staður: Eiðismýrin

Stund: Föstudaginn 22.des.  kl.19:30 eða bara þegar þið komist :)

Væri frábært ef einhver væri til að koma með smá nasl, ég sé um drykkjarföng en sé mér því miður ekki fært að baka!

Vona að sem flestir komist – megið gjarnan kommenta svo ég viti sirka hvejir komi.. Oddný – mig langar að sjá Evu :)

Jæja, best að taka smá lærdómsslurk, er alveg að sofna, gengur ekki… væri nú alveg til í MR próflestur núna þar sem maður var actually búinn að læra stundum, núna er maður aldrei búinn, frekar þreytandi…

Hlakka gríðarlega til að sjá ykkur,

jólijólijól…

Knús frá mér ;)

Flokkar: Blogroll