Jæja, það var kominn tími til að breyta til ! Hver veit hvort síðan endist er enn að læra á kerfið og svona en við sjáum til
Það er víst kominn tími á einhverjar fréttir en þar sem ég er blogglöt þá fáiði myndablogg í staðinn…
Afmælishelgin var frábær og gott að fá Ásgerði í heimsókn! Eins og ég var búin að nefna heppnaðist partýið einstaklega vel og skemmdu yndislegar gjafir fyrir… er búinn að nota margar þeirra nú þegar

Dísa skvísa og Auður

Við Ásgerður
Á afmælisdaginn var svo búið að undirbúa surprise afmælisveislu ala Teitgens Allé 21 og namminamminamm….

Ég var svona myndarleg í afmælinu mínu !
Á föstudaginn var svo árshátíð í skólanum hjá mér – ÖLLUM skólanum og það var uppselt sem þýðir (skv. óstaðfestum heimildum) yfir 10.000manns ! Og það var matur !! Reyndar ekki allir sem komu í matinn ennnnnn samt…. maturinn bar þess virkilega merki að vera fjöldaframleiddur en það var rosagóð stemmning
Það var allur skalinn af klæðnaði, einn og einn ekki baun fínn, flestir fínir og sumir virkilega gala… og margir way too much ! Það fer t.d. fæstum að vera í skærbleikum hafmeyjusilkikjól :S

Við Sandra vinkona

Michael og Jakob rosafínir
Eftir matinn var tjúttað VEEEEEEL og því fylgdi smá sjúskun og sviti….

Við Gyða, Sandra og Pil
og svona að lokum ein yndisleg grettumynd…

Hér sjáiði gömlu, ÞROSKUÐU vinkonur mínar – Helena, Hjördís, Guðný og Ragnheiður
Hmmm, nú er ég föst í því að skrifa í miðjunni… jæja ég læri kannski á þetta, kannski ekki!! Ég er annars búin að setja inn fullt fullt af myndum á netið, heil 4 albúm, dugleg ég svo að endilega kíkiði við
Ég ætla að halda áfram að glápa á heimildarþátt um OCD með Hillu, ég er sjúk í heimildaþætti um spennandi sjúkdóma !
Höldum kannski líka áfram að hakka í okkur íslenskt nammi !
5 responses so far ↓
Oddný // október 8, 2006 kl. 11:05 pm |
Ánægð með nýja bloggið, en myndirnar sjást ekki:/
Takk kærlega fyrir Evu Natalíu. Laufey kom í gær og gaf henni pakkann:)
berglind83 // október 9, 2006 kl. 9:32 am |
Verði henni að góðu
Hmmmmm, sjást myndirnar ekki, það er undarlegt… sjáið þið hin myndirnar?
Þær eru á netinu svo að þær ættu gjarnan að sjást !
Oddný // október 9, 2006 kl. 2:25 pm |
Sé þær núna:) Ég veit ekki hvað hefur verið að í gær. Kíkti nokkrum sinnum á þær, tölvan mín að stríða mér:)
Oddný // október 9, 2006 kl. 2:29 pm |
Hmm veit ekki alveg af hverju það vantar suma stafi hjá mér í síðasta kommenti:) Skemmtilegar myndir
ragnheidur // október 11, 2006 kl. 3:50 pm |
Þú lærir þetta þegar þú verður eldri esskan