Berglind Gunnarsdóttir

Entries from október 2006

Ísland, fagra Ísland…

október 26, 2006 · 17 Ummæli

Sam, breski vinur minn, fór í heimsókn heim til Íslands í haust og tók MAGNAÐAR myndir, rosalega hæfileikaríkur ljósmyndari !!!

Smjörþefur…

img473.jpg

Tékkiði á síðunni hans, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum !

http://blog.myspace.com/samdj1210

Landið okkar er BEAUTIFUL :D

Knús frá harðsperruberglindi ;)

Flokkar: Blogroll

Benni beini? Bergur beinMergur? …Jói?

október 19, 2006 · 10 Ummæli

Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn…

beini.jpg

 Hef annars voðatakmarkað að segja er alveg úrvinda eftir daginn! Var á vakt í Svendborg sem þýddi vakna klukkan 5 takk fyrir og ofan á allt þá svaf ég alveg hrikalega illa, sívaknandi og dreymdi illa, sniff :S Kom því loksins í verk að skrá mig sem heimsforeldri um daginn – fékk spark í rassinn við að horfa á heimildarþátt (surprise surprise) um hjón sem eiga 4 börn og 23 ættleidd – öll ættleiddu fötluð eða þroskaheft!! Er að hugsa um klukkutíma anatómíulærdóm núna og svo horfa á heimildarþátt í tv, uppáháldið mitt, hehe… oj, nördafærsla :)

 

 

Flokkar: Blogroll

Efterårs”ferie”

október 15, 2006 · 2 Ummæli

Þá er Berglind beygla komin í haustfrí ef frí skyldi kalla… tók mér lestrarfrí þessa helgi en svo þarf sko virkilega að taka á því alla vikuna, lesa upp helv… vefjafræðina frá því á síðustu önn en yfir í eitthvað hressara…

Það er allt rosagott bara að frétta og ekkert stórmerkilegt nýtt að segja… nema kannski að pabbi og co. voru að kaupa sér hús ! Helgin hjá mér hefur farið í vinnu og partýstand…. fór á vakt á fimmtudaginn á geðdeild þar sem ég var að passa gamla konu sem er dement (kölkuð?) og psykotisk (sorry íslenskan mín er ekki alveg nógu góð í dag… og aðra daga!). Konan býr s.s. á elliheimili en þarf öðru hverju að leggjast inn á geðdeild. Vaktin var vægast sagt áhugaverð… bryjaði afarrólega en svo færðist fjör í leikinn eftir kvöldmat og kvöldið fór meira og minna í að bíða eftir löggunni….. “nú hljóta þeir að fara að koma að sækja mig… spurning hvað þeir ætla að saka mig um í þetta skiptið…. kannski klára þeir bara dæmið í nótt, hverju munar um einn einstakling til eða frá… alveg er mér sama… ég hef átt gott líf” og svo sagði hún mér líka frá því hevrnig hún hefði hellt fötu af ísköldu vatni yfir dóttur sína einu sinni þegar hún grenjaði og grenjaði og grenjaði… “það er ekki eins og ég hafi skaðað hana, þaggaði bara niðrí henni”… jiiii dúdda og þegar ég fór var hún enn við útidyrahurðina í jakkanum sínum að bíða eftir löggunni og svolleiðis harðneitaði að fara að sofa !

Fór svo á næturvakt á föstudaginn sem var álíka áhugaverð… alkóhólisti sem var lagður inn í afeitrun getum við sagt, fannst af nágrönnum sínum í áfengiskrampakasti og var ansi nálægt því að drekka sig í hel, hrikalega sorglegt… vaktin mín var svosem ekkert gríðarlega erfitt, töluðum um lífið og tilveruna og ýmislegt sem hann sagði meikaði sens en annað alls ekki og svo ýtskýrði ég ansi ansi oft fyrir honum að hann væri á spítala og það væri ekki búið að stela öllu dótinu han og ég veit ekki hvað og hvað… hann svaf sem betur fer í einhverja tíma enda uppdópaður greyið af róandi lyfjum þar sem að hann hafði átt mjög erfiðan dag… greyið stelpan sem var á vaktinni á undan mér…. hann var víst á fullu alla vaktina, vissi ekkert hvar hann var, gat orðið ofbeldishneigður og bara já, mikið fjör, úfff…. en nóg um þetta, nenni nú ekki að fara út í smáatriði…

Góð reynsla að fá að umgangast svona margar týpur af fólki !

Í gær var svo partýast á varaorkunni, fór í stelpupartý til Guðnýjar og það var rosagaman, góluðum svoleiðis í singstar, kíktum svo aðeins á barinn á rasmus rask kollegi-inu (Laufey og Kolbrún ættu að muna eftir þeim stað !) og loks kíktum við guðný og hafrún aðeins í bæinn en það var ekkert megastuð…. í dag fór ég svo í ansi góðan 50mín. göngutúr að sækja hjólið mitt til Guðnýjar, fékk að kynnast nokkrum nýjum götum í bænum sem er alltaf gaman, kíkti við hjá Þórdísi og Einari Loga og spjallaði svo loks við Guðnýju og Hildi vinkonu hennar heillengi…. nú er ég svo alveg úrvinda, sit upp í rúmi hjá henni hillu og er svona að íhuga hvenær ég geti farið að sofa… kannski ekki alveg strax Berglind !

Þar hafiði það… enn ein “kæra dagbók” færslan ;)

 

Sakna þessa litla manns ansi mikið !!

P.s. Við Hildur erum með afargóðan playlista í gangi núna…

It Wasn´t me – Shaggy

Angel – Shaggy

Because I Got High – Afro Man

Wonderful Tonight – Eric Clapton

Fuck Her Softly – Tenacious D

Nína – Stebbi og Eyvi

Geðveikar? Nei… hvernig dettur ykkur það í hug :D

Flokkar: Blogroll

Hjálp ?!

október 10, 2006 · 5 Ummæli

Getur einhver hjálpað mér aðeins… hvernig get ég búið til svona “myndaborða” í hausinn á síðunni, svona eins og t.d. hún Inga Rós er með á sinni síðu … í hvaða forriti? (Makki!)  Ég veit hvernig ég set hann inn og hvað hann á að vera stór og sonna en en en….
Er vön að fikta þar til að hlutirnir takast en má ekki við þessari tímeyðslu núna ;)

Flokkar: Blogroll

Tilbreyting !

október 8, 2006 · 5 Ummæli

Jæja, það var kominn tími til að breyta til ! Hver veit hvort síðan endist er enn að læra á kerfið og svona en við sjáum til :-)

Það er víst kominn tími á einhverjar fréttir en þar sem ég er blogglöt þá fáiði myndablogg í staðinn…

Afmælishelgin var frábær og gott að fá Ásgerði í heimsókn! Eins og ég var búin að nefna heppnaðist partýið einstaklega vel og skemmdu yndislegar gjafir fyrir… er búinn að nota margar þeirra nú þegar :D

Dísa skvísa og Auður

 

Við Ásgerður ;)

Á afmælisdaginn var svo búið að undirbúa surprise afmælisveislu ala Teitgens Allé 21 og namminamminamm….

 

Ég var svona myndarleg í afmælinu mínu !

Á föstudaginn var svo árshátíð í skólanum hjá mér – ÖLLUM skólanum og það var uppselt sem þýðir (skv. óstaðfestum heimildum) yfir 10.000manns ! Og það var matur !! Reyndar ekki allir sem komu í matinn ennnnnn samt…. maturinn bar þess virkilega merki að vera fjöldaframleiddur en það var rosagóð stemmning :-) Það var allur skalinn af klæðnaði, einn og einn ekki baun fínn, flestir fínir og sumir virkilega gala… og margir way too much ! Það fer t.d. fæstum að vera í skærbleikum hafmeyjusilkikjól :S

 Sætar

Við Sandra vinkona

 

Michael og Jakob rosafínir

 

Eftir matinn var tjúttað VEEEEEEL og því fylgdi smá sjúskun og sviti….

 

Við Gyða, Sandra og Pil

 

og svona að lokum ein yndisleg grettumynd…

 

Hér sjáiði gömlu, ÞROSKUÐU vinkonur mínar – Helena, Hjördís, Guðný og Ragnheiður ;)

 

Hmmm, nú er ég föst í því að skrifa í miðjunni… jæja ég læri kannski á þetta, kannski ekki!! Ég er annars búin að setja inn fullt fullt af myndum á netið, heil 4 albúm, dugleg ég svo að endilega kíkiði við ;)

 

Ég ætla að halda áfram að glápa á heimildarþátt um OCD með Hillu, ég er sjúk í heimildaþætti um spennandi sjúkdóma !

 

Höldum kannski líka áfram að hakka í okkur íslenskt nammi !

 

 

Flokkar: Blogroll